Myndasýning frá Pakistanferð

Kæru félagar!

Á fimmtudaginn munu Pakistanfarar loksins gera almennilega grein fyrir ferð sinni um norðurhéruð Pakistans í máli og myndum.

Heitt verður á könnunni og kruðerí á boðstólnum í hléi.

Herlegheitin hefjast kl. 20:00.

Hvetjum alla félaga til að mæta!

—————-
Texti m. mynd: Hressir burðarmenn frá Yasin-héraðinu í N-Pakistan
Höfundur: Stefán Örn Kristjánsson