Nýja tjaldið komið á M6

Þá er byðin á enda, nýja Trelleborgartjaldið kom í hús í dag.

Tjaldið er talsvert léttara enn það sem HSSR skyldi eftir á Haiti og nýtist því vonandi betur við erfiðari flutningsaðstæður eins og í óbyggðum.

Tjaldið verður til sýnis á aðalfundi sveitarinnar 2 nóvember.

—————-
Texti m. mynd: Trelleborg 2/2L
Höfundur: Hilmar Már Aðalsteinsson

Búnaðarbazar ÍSALP OG FBSR

Áttu fulla geymslu af græjum sem hafa ekki verið hreyfðar lengi? Ertu að svipast um eftir reyndu göngutjaldi? Kanntu að meta fallega hluti með sögu? Ertu að safna fyrir næstu reisu?Ef þú ert í þessum pælingum þá ættirðu að kíkja á búnaðarbazar ÍSALP og Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík.

Þér er boðið að koma og selja/versla hluti og fatnað sem á einhvern hátt tengjast útivist og fjallabrölti.

Þetta er þriðja árið í röð sem ÍSALP heldur búnaðarbazar í samstarfi við FBSR. Reynslan er góð og það hefur sýnst sig að ólíklegustu hlutir fá nýja eigendur. Stemmningin undanfarin ár hefur verið gríðarlega góð og prútt stundað á hverjum bás.

Hvar: Hús Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík við Flugvallarveg

Hvenær: Fimmtudagskvöldið 28. október kl. 20. Seljendur hvattir til að mæta kl. 19.30

Munið að mæta í prúttstuði með fulla vasa af reiðuféi. Næsti hraðbanki er á Hótel Loftleiðum.

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson

Neyðarkallinn 2010

Dagana 4.-6. nóvember fer fram árleg fjáröflun björgunarsveitanna "Neyðarkallinn".
HSSR félagar eiga von á nánari upplýsingum um söluátakið upp úr helgi og eru beðnir um að lýta vel í kringum sig eftir kaupendum á vinnustöðum og víðar.
Einnig munum við selja Neyðarkallana við verslanir seinnipart fimmtudags, á föstudegi og laugardegi.
Í þetta söluátak þurfum við margt fólk og vonum að sem flestir taki allvega eina söluvakt.

—————-
Texti m. mynd: Neyðarkallinn 2010
Höfundur: Hlynur Skagfjörð Pálsson

Fjall kvöldsins – Miðvikudagur 20. október

Þriðja fjall kvöldsins verður klifið miðvikudaginn 20. október. Leiðsögumaður verður enginn annar en Ragnar Antoniussen fjallageit en hann ætlar að leiða göngumenn í ógleymanlega ferð á Dýjadalshnúk og Tindstaðahnúk á Tindstaðafjalli en það er á mörkum Kjalarness og Kjósar norðvestan í Esjunni. Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast Esjunni frá nýju sjónarhorni og fullgildir félagar í sveitinni og nýliðar eru hvattir til að mæta – aldrei leiðinlegt að ganga með með manni eins og Ragga. Mæting verður á Malarhöfðann kl. 17:45 og brottför kl. 18. Akstur á vegum sveitarinnar og á einkabílum ef þörf verður á.

Svo eins og alltaf er mikilvægt að vera vel búinn, í góðum skóm og í hlýjum fatnaði. Munið eftir höfuðljósum og nestisbirtanum að ógleymdu góða skapinu 😀

Sjáumst

—————-
Höfundur: Íris Lind Sæmundsdóttir

Tækjahópur

Nú er starf tækjahóps komið í fullan gang eftir lágdeyðu sumarsins og eru verkefnin sem koma á borð okkar margvísleg og skemmtileg. Í næstu viku mun hópurinn til dæmis sjá um námskeið fyrir erlenda ráðstefnugesti Björgunar. Farið verður með þá á Langjökul þar sem þeim verður kynnt notkun tækja við leit og björgun á jöklum. Verkefni sem þetta skilar bæði tekjum en einnig góðri reynslu í reynslusafn þeirra sem taka þátt.

Þá hafa orðið breytingar á stjórn tækjahóps þar sem Guðmundur Jón Björgvinsson hefur tekið við keflinu af Baldri Gunnarssyni sem annar tveggja formanna hópsins. Við bjóðum Gumma, sem er búinn að starfa í sveitinni frá því elstu menn muna, velkominn og þökkum Baldri vel unnin störf síðastliðin ár.

—————-
Texti m. mynd: Reykur 3 í hálendisgæslu sumarið 2010.
Höfundur: Davíð Örvar Hansson

Myndir í ársskýrslu

Nú stendur yfir ritun og uppsetning á ársskýrslu fyrir árið 2009 – 2010. Ef þú átt skemmtilegar myndir og ert tilbúin að birta þær í ársskýrslunni þá endilega sendu þær á haukur@frae.is

Ekki eru sett nöfn við myndir í ársskýrslu (það er hver tekur) en við leitum sérstaklega að myndum af félögum við fjölbreytt störf. (ferðir-fjáraflanir-viðhalda- og viðgerðir) Myndirnar þurfa að berast ekki síðar en miðvikudaginn 20. október.

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson

Gögn fyrir nýliða

20.10: Komnar örlítið nánari upplýsingar um löngu fjallgönguna

Búið er að setja dagskrá Nýliða 1 inn á vefinn aftur en hún hvarf um daginn! Hér er hún ásamt fleiri gögnum fyrir nýliða.

Dagskrá Nýliða 1 veturinn 2010-2011Bæklingurinn til að kynna nýliðastarfið (útbúnaðarlistar og fleiri upplýsingar)
Kynningarglærurnar frá í September Annað gagnlegt

Facebook síðanHnútar

—————-
Höfundur: Einar Ragnar Sigurðsson

Fyrsta Hjálp 2

Námskeiðið Fyrstu hjálpa 2, fyrir nýliða 2 verður haldið um helgina. (15-17.okt.)

Námskeiðið byrjar stundvíslega kl 18:00 á föstudaginn 15.okt

mæting er svo kl 8:00 á laugardaginn og sunnudaginn.

Kennari verður Eiríkur Oddsson

Skráningu er á korknum en henni lýkur í kvöld þriðjudaginn 12.okt. kl: 23:59

kv. Sjúkrahópur

—————-
Höfundur: Emil Þorvaldsson

Uppstilling til stjórnar HSSR haustið 2010

Uppstillinganefnd kynnti uppstillingu til stjórnar HSSR haustið 2010 á sveitarfundi 28.september.
Eftirfarandi gefa kost á sér til stjórnarsetu næsta tímabil.

Haukur Harðarson gefur kost á sér til sveitarforingja en kosið er til eins árs í senn.

Kosið er um almenna stjórnarmenn til tveggja ára í senn.

Örn Guðmundsson situr í stjórn og á eftir eitt ár.

Anna Dagmar Arnardóttir gefur kost á sér í stjórn HSSR til tveggja ára.
Helga Björk Pálsdóttir gefur kost á sér í stjórn HSSR til tveggja ára.
Hilmar Már Aðalsteinsson gefur kost á sér í stjórn HSSR til tveggja ára.

Tveir stjórnarmeðlimir sem áttu eftir eitt ár af stjórnarsetu hætta nú og losnar því um tvö sæti í stjórn til eins árs.

Björk Hauksdóttir gefur kost á sér í stjórn HSSR til eins árs.
Frímann Ingvarsson gefur kost á sér í stjórn HSSR til eins árs.

Félögum er bent á að öllum er frjálst að bjóða sig fram til stjórnar HSSR og munu kosningar fara fram á aðalfundi sveitarinnar 2.nóvember.

Uppstillinganefnd,
Brynja, Hálfdán og Einar

—————-
Höfundur: Brynja Björk Magnúsdóttir

Frábær ferð með nýliða.

Um nýliðna helgi héldu nýliðaforingjar og Viðbragðshópur með efnilegan flokk nýliða í vel heppnaða helgargönguferð með allan búnað á bakinu.

Ferðin hófst hjá Stíflisdal og gengið var að Grjótártjörnum á sunnanverðum Kili þar sem tjaldað var fyrri nóttina. Um morguninn var vaknað í blíðskaparveðri og gengið yfir Kjöl, þvert á Leggjarbrjót, upp Súlnadal með viðkomu í Bratta, sumir klifu Háusúlu og endað í tjaldstað við Skinnhúfuhöfða austan við Hvalvatn undir kvöld.

Veðrið var eins og það gerist best um miðjan júlí, nánast alla ferðina.

Á sunnudagsmorguninn virti hópurinn fyrir sér útsýnið ofan af Skinnhúfuhöfða og síðan var haldið norðu með Hvalvatni, þar sem gengið var niður með Botnsá og Glymur skoðaður. Auðvitað stóð hópurinn sig með mikilli prýði og gaman verður að fylgjast með þeim á námskeiðum á næstunni og sjá þau verða að alvöru „björgunarfólki“.

—————-
Höfundur: Árni Tryggvason