Jólatrjáasala HSSR 🎄✨

Jólatrjáasala Hjálparsveitar skáta í Reykjavík hófst í fyrsta sinn árið 2025 og er hlýleg og notaleg viðbót við fjáröflunarleiðir sveitarinnar. Þar geta gestir valið sitt fullkomna jólatré í sannkallaðri hátíðarskemmtun – og styrkt um leið mikilvægt björgunar- og öryggisstarf sveitarinnar.

Í boði eru glæsilegur norðmannsþinur frá Danmörku og íslenskar stafafurur, auk greina, jólatrésfóta og útikerta. Allur ágóði af sölunni rennur beint í rekstur sveitarinnar, búnað og þjálfun sjálfboðaliða.

Jólin 2025 – Jólatrjáasala við Elliðaárstöð 🎅🌟

Þessi jól (2025) verður jólatrjáasala HSSR staðsett við Elliðaárstöðina, Rafstöðvarveg 14, í fallegu umhverfi og jólalegri stemningu og opnar hún þann 6. desember.

🕰 Opnunartímar:

Virkir dagar: 16:00–21:00

Helgar: 10:00–21:00

Sérstakir opnunartímar: 22. og 23. desember : 10:00-21:00

🎄 Í boði eru:

Fyrsta flokks norðmannsþinur frá Danmörku

Íslensk stafafura

Greinar, jólatrésfætur og útikerti

Athugið birgðarstaða verður uppfærð 1. desember

Öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur og geta breyst án fyrirvara.