Fyrrum sveitarforingi fallinn frá.

Látinn er á Hvammstanga Hreinn Halldórsson fyrrum sveitarforingi HSSR.
Hreinn var í hópi þeirra sem að endurreistu Hjálparsveit skáta í Reykjavík á sínum tíma og var til margra ára í stjórn Skátabúðarinnar.

Félagar í HSSR votta syni Hreins, Halldóri og fjölskyldu hans sýna dýpstu samúð.

Útför Hreins fer fram frá Hvammstangakirkju mánudaginn 1. nóvember kl. 15.00

—————-
Höfundur: Hlynur Skagfjörð Pálsson

Erikurall

Hið fyrsta Erikurall verður haldið á árshátíðinni. Um er að ræða liðakeppni sem svipar mjög til Drifstútarallsins og Þríþraut Bíló hér fyrir ekki svo mörgum árum og er í raun sjálfstætt framhald af þeim keppnum.

Keppt verður í 3ja manna liðum og er áætlað að keppnin taki um 3-4 klst.
Við hvetjum við alla til að koma sér í lið, því það er jú skemmtilegra er að taka þátt en að horfa á aðra gera það.

Skráning fer fram á arshatid@hssr.is

Þegar nær dregur fá lið sendan útbúnaðarlista og reglur um stigagjöf.

—————-
Texti m. mynd: Frá Drifstútarallinu 2005
Höfundur: Frímann Ingvarsson

Hóppöntun á gönguskíðum.

Ágætu félagar.

Nú ætlum við að rífa upp „gönguskíðakúltúrinn“ í sveitinni.

Sl. vetur stóð til að halda námskeið í skíðagöngu sem því miður varð ekki af, af augljósum ástæðum. Við ætlum ekkert að gefast upp og því stendur til að kanna áhuga félaga á að taka þátt í hóppöntun á góðum ferðagönguskíðum fyrir félaga sveitarinnar. Fyrir nokkrum árum fór einn flokkurinn í slík kaup og kom verði búnaðarins töluvert niður fyrir það sem annars hefði þurft að greiða, hefði hver og einn keypt sínar græjur. Svo ef stemning verður fyrir því eftir áramót, setjum við upp gott skíðagöngunámskeið fyrir félaga, sem helst endar með góðri skíðagönguferð þegar líður að vori.

Nú er kominn á korkinn skráningarlisti fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt í kaupunum.

kv. Árni Tr.

—————-
Texti m. mynd: Bestu farartækin í vetrarferðum.
Höfundur: Árni Tryggvason

Árshátíð 2010

Árshátíð HSSR 2010 mun fara fram þann 20. nóvember í Húsadal í Þórsmörk.
Að þessu sinni mun miðaverð nema 3500 kr. á mann í venjulega gistingu. En ef keyptir eru miðar í 2 manna herbergi kostar 4000 kr. á mann. Innifalið í miðaverði er rúta fram og til baka, gisting, hádegis- og kvöldverður á laugardeginum og morgunmatur fyrir brottför á sunnudeginum. Brottför frá M6 er á laugardeginum 20. nóv kl 10:30 og er æskilegt að fólk mæti u.þ.b korteri fyrir brottför.
Þaðan verður ekið beint inn í Þórsmörk þar sem fólk gæðir sér á hádegisverði, áður en lagt verður í Erikurall.
Eftir æfingar dagsins munu grillmeistarar HSSR skella lambi á grillið og snæddur verður kvöldmatur í góðum félagsskap og hlýtt á skemmtiatriði hópa. Síðar munu hljóðfærin gripin, söngurinn óma og danssporin tekin.

Aðstaðan í Húsadal er til fyrirmyndar. Þar höfum við gufu, heitan pott og sal okkur til dægrardvalar.

Til að kaupa miða er lagt inn á reikning sveitarinnar og jafnframt sendur tölvupóstur á arshatid@hssr.is þar sem nafn, fjöldi miða og hvort sótt er eftir 2 manna herbergi.

Öllum fyrirspurnum varðandi árshátíðina svarað á arshatid@hssr.is

Kennitala: 521270-0209

Reikningsnr: 0311-26-002729

—————-
Höfundur: Frímann Ingvarsson

Kortlagning sprungusvæða á jöklum

Að loknum aðalfundi mun Snævarr Guðmundsson halda fyrirlesturinn Kortlagning sprungusvæða á jöklum. Þetta er fyrirlestur sem haldin var á Björgun og tekur um 45 mínútur.Undanfarin 25 ár hefur jöklaferðum fjölgað gríðarlega, ekki síst á vélknúnum farartækjum. Á sama tíma hafa jöklar tekið miklum breytingum, samhliða loftslagshlýnun, m.a með þeim afleiðingum að jökulsprungur og sprungusvæði hafa komið í ljós þar sem áður var sléttur jökull. Í fyrirlestrinum verður greint frá kortlagningu á þessum sprungusvæðum, sem er ætlað að auka öryggi ferðalanga. Sagt verður frá tilgangi verkefnisins, flokkun á sprungusvæðum, kortlagningu og gagnsemi kortanna í GPS tækjum og á kortum.Snævarr hefur meira en 30 ára reynslu af ferðum um jökla og er m.a fjallaleiðsögumaður. Hann stundar nú nám í landfræði og jarðfræði í Háskóla Íslands.

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson

Aðalfundur og skýrsla stjórnar.

Munið aðalfund Hjálparsveitar skáta í Reykjavík sem verður haldinn þriðjudaginn 2. nóv. kl. 20.

Skýrslu stjórnar er að finna á heimasíðunni undir liðnum gögn, einnig má nálgast skýrsluna á vefslóðinni.

https://hssr.is/images/gogn/ALM_1026_1459_23_1.pdf

Eftir fund er í boði spennandi fyrirlestur um Kortlagningu sprungusvæða á jöklum sem Snævarr Guðmundsson heldur.

kv. Stjórn.

—————-
Texti m. mynd: hætturnar leynast víða
Höfundur: Árni Þór Lárusson

Góð Björgun

Ráðstefnan Björgun var haldin á vegum SL síðastliðna helgi. Aðsókn var góð, um 400 skráðir og þar af 60 erlendir þátttakendur. Tuttugu félagar frá HSSR voru á staðnum og var það mat þeirra og annarra sem ég talaði við að fyrirlestrar væru almennt góðir og sérstaklega heyrði ég mörgum innlendum fyrirlesurum hrósað.

Mun verða unnið að því að fá ákveðna fyrirlestra til HSSR á lausum þriðjudagskvöldum. Einnig var sýning á búnaði og þetta árið voru af einhverjum ástæðum margir að sýna ljós.

Góð ráðstefna og SL fær hrós fyrir góða skipulagningu og val á fyrirlesurum.

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson

Klifurkvöld

í kvöld ætla nokkrir N1 að taka smá í klifurvegginn og verðum við Daníel Másson á svæðinu til þess að leiðbeina þeim sem vilja. Öllum er velkomið að kíkja við í kvöld hvort sem er til þess að klifra, prófa, chilla, spjalla eða einfaldlega bara læra eitthvað nýtt. Við verðum þarna ca. frá 19:00 til 22:00

Danni og Ottó

—————-
Texti m. mynd: Eitt fræknasta klifurtríó síðustu ára!!!
Höfundur: Ottó Ingi Þórisson

Björninn tekin formlega í notkunn

Björgunarsveitirnar á höfuðborgarsvæðinu hafa tekið í notkun nýjan stjórnstöðvarbíl sem ber heitið Björninn.
Smíði bílsins tók tuttugu mánuði og var hún að mestu unnin í sjálfboðavinnu. Þetta er einn fullkomnasti stjórnstöðvarbíll Evrópu. Í honum er nýjasta fjarskiptatækni sem völ er á, svo og þrettán tölvuskjáir, rafstöð, símstöð og tveir kílómetrar af rafmagnsköplum. Áður en bílnum var breytt var hann í notkun hjá Mjólkursamlaginu í Búðardal.

Gengið hefur verið frá samningi milli sveita á svæði 1 um rekstur á bílnum og mun kostnaður vegna hans skiptast á milli sveita í samræmi við tekjuúthlutunarkerfi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.

—————-
Texti m. mynd: Klippt á borðann
Höfundur: Haukur Harðarson

Námskeið í grunnatriðum fjallabjörgunar

Nú um helgina var haldið námskeið í grunnatriðum fjallabjörgunar fyrir nýjar undanrennur. Námskeiðið er mjög mikilvægur hluti af þeirri þjálfun sem undanrennur þurfa að afla sér til að geta starfað með undanförum. Námskeiðið stóð frá föstudegi fram á sunnudag og var farið í öryggi í fjallabjörgun, uppsetningu björgunarkerfa, Panorama Pick-Off, björgunarkerfi án þess að nota börur og svo loks brattbrekkubjörgun. Námskeiðið tókst vel og stóðu undanrennur, þeir Eiríkur L, Kári Loga, Ottó Ingi og Ragnar A sig með stakri prýði.

—————-
Texti m. mynd: Ragnar gerir sig líklegan til að síga niður.
Höfundur: Helgi Tómas Hall